Landsvæði og íbúafjöldi
Hvalfjarðarsveit varð til 1. júní 2006 með sameiningu fjögurra hreppa sem oft voru kallaðir “hrepparnir sunnan Skarðsheiðar.” Þetta voru Hvalfjarðar-strandarhreppur, Skilmannahreppur, Leirár- og Melahreppur og Innri-Akraneshreppur. Hið nýja sveitarfélag fékk nafnið Hvalfjarðarsveit.
Hvalfjarðarsveit er blómleg sveit sem nær frá Hvalfjarðarbotni í austri, Skorradal í norðri, Borgarfjarðarbrú í vestri og Akranesi í suðri. Landslagið er fjölbreytt, bæði allmikið undirlendi en einnig snarbrattar hlíðar formfagurra fjalla og vogskornar og lífauðugar strendur. Náttúrufegurð er víða allmikil og möguleikar óþrjótandi til að njóta frábærrar útiveru í nágrenni við höfuðborgarsvæðið. Vesturlandsvegur liggur eftir endilöngu sveitarfélaginu frá Hvalfjarðargöngum að Borgarfjarðarbrú.
Hvalfjarðarsveit er landbúnaðarhérað en einnig er öflugt iðnaðarsvæði á Grundartanga. Þar er að finna eina stærstu höfn landsins og tvö stóriðjuver. Flestir íbúar búa í dreifbýli, en þó eru þéttbýliskjarnar í Melahverfi, Hlíðarbæ og víðar. Sveitarfélagið rekur einn leikskóla, Skýjaborg, í Melahverfi og einn grunnskóla, Heiðarskóla, í landi Leirár í Leirársveit.
Íbúar Hvalfjarðarsveitar voru 640 talsins þann 1. desember 2009 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Landssvæðið sem Hvalfjarðarsveit nær yfir er 494 ferkílómetrar að stærð.