a aa aaa

Staðardagskrá 21 fyrir Hvalfjarðarsveit

 

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 3. október 2006 að hefjast handa við gerð Staðardagskrár 21. Það var Umhverfis- og náttúruverndarnefnd sem hafði forgöngu um málið og stóð m.a. fyrir kynningu um Staðardagskrá fyrir umhverfisnefndina og sveitarstjórn.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tillaga umhverfisnefndar um að skipa 3ja manna stýrihóp sem héldi utan um verkefnið var samþykkt. Í stýrihópnum sitja:

 

Arnheiður Hjörleifsdóttir, formaður (arnheidur@hvalfjardarsveit.is)

Jón Haukur Hauksson, ritari

Bylgja Hafþórsdóttir

Fundargerðir stýrihópsins, sem og annað efni sem vinnunni tengist mun verða birt hér á síðunni, áhugasömum til upplýsingar.

Þá eru íbúar Hvalfjarðarsveitar hvattir til að kynna sér Staðardagskrá 21 og vera í sambandi við stýrihópinn hafi þeir hugmyndir eða vilji þeir koma á framfæri athugasemdum eða ábendingum.

 

Athugið að nýjustu fundargerðirnar gætu átt eftir að fá endanlega staðfestingu sveitarstjórnar.  Fundir sveitarstjórnar eru haldnir einu sinni til tvisvar í mánuði

 

Fundargerðir

 

 

Staðardagskrá í Hvalfjarðarsveit 

Skref fyrir skref/ bæklingur frá Landvernd

 

Heimasíða íslenska Staðardagskrárverkefnisins: www.samband.is/dagskra21 

 

 

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 23. október 2006, að undirrita svokallaða Ólafsvíkuryfirlýsingu og hafa þar með sjálfbæra þróun að leiðarljósi við ákvarðanatöku sína.