Verkefnisstjórn fyrir nýbyggingu Heiðarskóla, fundur nr. 34
Dags. 5.7.2010
FUNDARGERÐ
34. fundur verkefnisstjórnar vegna nýbyggingar Heiðarskóla Hvalfjarðarsveit.
Haldinn 05. 07. 2010 kl.10.00 í stjórnsýsluhúsinu að Innrimel 3
Mættir:
Ólafur Jóhannesson, Jón Þórarinsson, Guðjón Jónasson. Einnig mættu Sigurður Arnar Sigurðsson eftirlitsmaður verkkaupa og Sæmundur Víglundsson starfandi byggingafulltrúi.
Ólafur setti fundinn, bauð menn velkomna og var síðan gengið til dagskrár
Mál til afgreiðslu
1) Vinnsla klappar í grunni.
Snókur fer fram á aukaverk vegna fleygunar á klöpp sem virðist hafa verið mun harðari en gert var ráð fyrir. Sigurði er falið að endurreikna magn klapparinnar þar til frekari ákvarðanir verða teknar.
2) Færsla girðingar inná land Leirár. Sæmundi er falið að klára málið við eigendur Leirár.
Sveitarfélagið mun sjá um að færa girðinguna í framhaldinu.
3) Erindi frá verktaka vegna auglýsingar á framkvæmdinni.
Eykt hefur lagt fram erindi þess efnis að fá að setja upp auglýsingu á framkvæmdinni á gatnamótum Leirársveitarvegar og þjóðvegar 1. Nefndin vísar erindinu til skipulags- og bygginganefndar.
4) Samskipti við hönnuði.
Verktaki og eftirlitsmaður telja að samkipti við verkfræðihönnuði séu á tíðum erfið. Erfiðlega gangi að fá lagfæringar á misræmi í teikningum. Eykt fer fram á að fá fastagreiðslu vegna misræma í teikningum. Kröfunni er vísað frá.
Nefndin leggur til að sveitarstjóra verði falið að fara yfir samningin með Óskari hjá VSB.
5) Vindmanir við skólabyggingu.
Þeirri spurningu velt upp hvort skoða eigi nauðsyn á vindmönum við skólabygginguna. Jóni er falið að spyjast fyrir um málið hjá kunnugum á Kjalarnesi.
6) Sumarfrí eftirlitsmanns.
Sigurður Arnar fer í sumarfrí 16. júlí til 9. ágúst. Samúel Guðmundsson mun leysa hann af.
7) Hitaveitumál.
Nefndin leggur til að gerð verði úttekt á heitavatnsmálum vegna nýju skólabyggingarinnar.
Fleira ekki gert fundi slitið kl. 12:00
Ólafur Jóhannesson formaður
Jón Þórarinsson
Guðjón Jónasson
Sigurður Arnar Sigurðsson
Sæmundur Víglundsson
Til baka