a aa aaa
Verkefnisstjórn fyrir nýbyggingu Heiðarskóla, fundur nr. 30

Dags. 1.3.2010

FUNDARGERÐ

30. fundur verkefnisstjórnar Hvalfjarðarsveitar.

Haldinn 1. mars 2010 kl. 16:15 að Innrimel 3.

 

Mætt:

Arnheiður Hjörleifsdóttir, Ólafur Jóhannesson og Björgvin Helgason, einnig sátu fundinn Hallfreður Vilhjálmsson oddviti, Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri og Skúli Lýðsson skipulags og byggingarfulltrúi, Stefán Ármannsson, Magnús Ingi Hannesson og Sigurður Sverrir Jónsson sveitarstjórnarfulltrúar.

 

Sveitarstjórnarfulltrúum var boðin áheyrn að fundinum, en tilgangur fundarins er að kynna niðurstöður VSÓ ráðgjafar á yfirferð tilboða við nýbyggingu Heiðarskóla.

 

 

Fundargerð

 

Tilboð bárust frá fjórum aðilum, ÍAV, Eykt, Jáverk og Vestfirskum verktökum.

Alls bárust 4 aðaltilboð og 9 frávikstilboð. Frávikstilboð voru heimiluð í útboðinu en forsendur þeirra voru:

• Engar eignir teknar uppí sem hluti af greiðslum.

• Aðrar byggingartæknilegar lausnir en kveðið er á um í útboðsgögnum, t.d. forsteyptar einingar og sv.frv.

 

Samkvæmt mati VSÓ ráðgjafar og ákvæðum útboðsgagna er fráviksboð 1. frá Eykt hagstæðast. Í samræmi við það leggur verkefnisstjórn til við sveitarstjórn að leitað verði samninga við Eykt á grundvelli þess.

 

Fráviksboð 1. frá Eykt hljóðaði uppá kr. 485.432.178.- sem er um 80% af kostnaðaráætlun.

 

Fleira gerðist ekki. Fundargerð upp lesin og samþykkt. Fundi slitið kl. 18:00

 

Arnheiður Hjörleifsdóttir formaður

Ólafur Jóhannesson

Björgvin Helgason fundarritari



Til baka