Verkefnisstjórn fyrir nýbyggingu Heiðarskóla, fundur nr. 18
Dags. 11.12.2009
FUNDARGERÐ
18. fundur verkefnisstjórnar fyrir nýbyggingu Heiðarskóla.
Haldinn að Innrimel 3 þann 11.12.09. kl. 10.00.
Mætt: Arnheiður Hjörleifsdóttir, Ólafur Jóhannesson, Björgvin Helgason Dóra Líndal.
Arnheiður setti fundinn.
1. Smíðastofa. Farið yfir teikningar af fyrirkomulagi í smíðastofu. Lagt er til að hefilbekkir verði mjókkaðir og að stóra smíðasamstæðan verði í framtíðinni geymd á núverandi stað, þ.e. í bílskúr. Með því fyrirkomulagi er gott kennslu- og vinnurými í smíðastofunni.
2. Fyrirkomulag vegna framreiðslu matar. Farið yfir tillögur arkitekta að fyrirkomulaginu. Samþykkt.
3. Afmörkun framkvæmdasvæðis. Ólafur fór yfir hugmyndir að afmörkun framkvæmdasvæðis, öryggisþætti vegna fyrirhugaðra framkvæmda, mögulega gönguleið milli bygginga, aðkomu skólabíla og bílastæði starfsfólks. Þessar hugmyndir verða ræddar við verkfræðinga VSB verkfræðistofu sem munu í framhaldinu teikna þessi atriði upp.
4. Hljóðkerfi í sal. Dóra mun fara yfir tillögur hljóðhönnuðar vegna færanlegs hljóðkerfis m.t.t. þess búnaðar sem til er.
5. Félagsrými unglinga. Mælar þarf upp tæki í félagsrými unglinga, sem núna eru staðsett í Fannahlíð. Dóra mun koma þessum málum til hönnuða.
6. Kynning. Verkefnisstjórn ásamt Dóru leggur til kynningu á verkefninu fyrir starfsfólki Heiðarskóla næstkomandi mánudag. Nánar útfært í samráði við arkitekta.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11.30
Arnheiður Hjörleifsdóttir, fundarritari
Björgvin Helgason
Ólafur Ingi Jóhannesson
Til baka