Verkefnisstjórn fyrir nýbyggingu Heiðarskóla, fundur nr. 3
Dags. 20.7.2009
3. Fundur verkefnisstjórnar fyrir nýbyggingu Heiðarskóla. Haldinn í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar 20.7.2009 kl. 19:15.
Á fundinn eru mætt:
Arnheiður Hjörleifsdóttir
Dóra Líndal Hjartardóttir
Guðjón Jónasson, sem ritaði fundargerð
Þorbergur Karlsson frá VSÓ
Arnheiður setur fundinn og fer yfir dagskrána.
- Val á útboðsleið.
Þorbergur fer ítarlega yfir kosti og galla verkhlutaútboða og heildarútboða. Nokkrar umræður um mögulegar útboðsleiðir.
Verkefnisstjórnin leggur til við sveitarstjórn að farin verði leið heildarútboðs framkvæmdar með forvali og að valdar eignir sveitarfélagsins verði settar til móts við kostnað við framkvæmdina að hluta.
Þorbergur yfirgefur nú fundinn kl. 20:30
- Drög að erindisbréfi verkefnisstjórnar.
Verkefnisstjórnin leggur til við sveitarstjórn að erindisbréfið verði samþykkt.
- Drög að deiliskipulagi Heiðarskóla/Heiðarborgar.
Lögð eru fram drög að deiliskipulagi Heiðarskóla/Heiðarborgar.
Fleira var ekki gert á fundinum. Formaður mun boða til næsta fundar.
Fundi slitið kl. 12:45.
Arnheiður Hjörleifsdóttir
Dóra Líndal Hjartardóttir
Guðjón Jónasson
Til baka