a aa aaa
Staðardagskrá 21, fundur nr. 6

Dags. 30.11.2006

Stýrihópur um Staðardagskrá 21 í Hvalfjarðarsveit

 

6. fundur haldinn í Miðgarði, 30. nóvember 2006, kl. 19:30

 

Mætt eru frá stýrihópi:  Arnheiður Hjörleifsdóttir, formaður, Bylgja Hafþórsdóttir og Jón Haukur Hauksson, sem ritaði fundargerð.  Þá eru mætt nefndarmenn og varamenn í skipulags- og byggingarnefnd:  Sigurgeir Þórðarson, Daníel Ottesen, Magnús Hannes­son, Bjarni Jónsson og Ása Helgadóttir, auk skipulags- og byggingarfulltrúa Skúla Lýðs­syni.  Þá er mætt Ragnhildur Helga Jónsdóttir, frá Landsskrifstofu Staðardagskrár 21.

 

Arnheiður bauð fundarmenn velkomna og kynnti verkefni og dagskrá fundarins sem er vinnu­fundur til undirbúnings staðardagskrárverkefninu sem Hvalfjarðarsveit hefur ákveðið að taka þátt í. 

 

Ragnhildur kynnti í stuttu máli inntak Staðardagskrár 21, að um sé að ræða velferðar­áætlun fyrir sveitarfélagið.  Taka þarf á umhverfis­legum, félagslegum og efnahags­legum þáttum og áætlunin þarf að taka til 15 – 20 ára tímabils, jákvætt að horfa til lengra tímabils.  Hvalfjarðarsveit ætlar að hafa sjálfbæra þróun að leiðarljósi með undirritun Ólafsvíkuryfirlýsingunnar.  Gert er ráð fyrir að unnið sé yfirlit yfir hvernig staðan er núna, hvert vilji er til að stefna og hvaða verkefni eigi að setja niður. 

 

Arnheiður skipti fundarmönnum í tvo vinnuhópa og gerðir voru minnispunktar.  Farið var stuttlega yfir punkta hópanna.

 

Ragnhildur ræddi næstu skref og áframhaldandi vinnu nefndarinnar við verkefnið. 

 

Fundi slitið kl. 21:33.

 

Jón Haukur Hauksson



Til baka