Félagsmálanefnd Hvalfjarðarsveitar, fundur nr. 9.
Dags. 9. jan 2007.
9. fundur Félagsmálanefndar haldinn á fyrrum þingstað Skilmenninga í Hvítanesi þann 9. janúar 2007 og hófst hann kl. 17.15
Mættir voru: Margrét Magnúsdóttir Stefán G. Ármannsson
Valdís Heiðarsdóttir Dóra Líndal Hjartardóttir Ingunn Stefánsdóttir
Fundur settur af formanni.
Fyrir var tekið:
1. Fundargerð síðasta fundar lesin og samþykkt.
2. Fjárhagsáætlun. Umræður og samþykkt að gera nokkrar athugasemdir og fyrirspurnir varðandi hana. Formanni falið að koma þeim á framfæri.
3. Farið yfir orðalag á reglum um heimagreiðslur til þeirra foreldra sem það kjósa. Ætlunin að koma þeim á vef Hvalfjarðarsveitar á næstunni.
4. Reglur um félagslega heimaþjónustu á vegum Hvalfjarðarsveitar. Málinu frestað.
5. Ráðning starfsmanns í heimaþjónustu. Þrjár umsóknir bárust. Samþykkt af meirihluta að ráða Guðnýju Guðnadóttur til starfa á eitt heimili þar sem vantar starfskraft.
6. Reglur um fjárhagsaðstoð á vegum Hvalfjarðarsveitar. Fram kom að sveitastjóri væri að vinna drög að þeim.
7. Trúnaðarmál. Fært í trúnaðarmálabók.
8. Önnur mál. Samþykkt að gefa út leyfi fyrir Hildu Hólm Árnadóttur, Hagamel 18, til þess að gerast dagmóðir enda hafi hún lagt fram öll tilskilin vottorð til þess.
Fundi slitið kl. 18.30.
Margrét Magnúsdóttir Stefán G. Ármannsson
Valdís Heiðarsdóttir Dóra Líndal Hjartardóttir
Ingunn Stefánsdóttir