a aa aaa
Óvirk félagsmálanefnd, fundur nr. 8

Dags. 5.12.2006

Félagsmálanefnd Hvalfjarðarsveitar, fundur nr. 8.

 

Dags. 5. des 2006.

 

8. fundur Félagsmálanefndar haldinn í Hvítanesi þriðjudaginn 5. desember 2006 og hófst hann kl. 17.00

 

Mættir voru:  Margrét Magnúsdóttir  Stefán G. Ármannsson Valdís Heiðarsdóttir Dóra Líndal Hjartardóttir   Ingunn Stefánsdóttir                                         

 

Fundur settur af formanni.

 

Fyrir var tekið:

 

1.    Fundargerð síðasta fundar lesin og samþykkt

  1. Punktar að stefnu sveitastjórnar um málefni barna undir grunnskólaaldri: Félagsmálanefnd fagnar metnaðarfullum hugmyndum sveitastjórnar um málefni barna. Tillaga I. Stefán lagði fram tillögu um greiðslur til heimavinnandi foreldra eftir að fæðingarorlofi lýkur og taki hún gildi 1.1.2007. Samþykkt að leggja tillöguna fyrir sveitastjórn ásamt útfærslu á reglum þar að lútandi. Tillaga II. Stefán lagði fram tillögu um greiðslur á kostnaði vegna vistunar barna hjá dagmæðrum enda komist þau ekki inn á leikskóla þrátt fyrir að hafa rétt til þess. Tillagan sé afturvirk frá 1. ágúst sl. Samþykkt að leggja tillöguna fyrir sveitastjórn.

3.    Drög að stefnu sveitastjórnar um félagslega heimaþjónustu. Umræður og málinu frestað.

4.    Farið yfir stöðu nokkurra mála sem tekin hafa verið fyrir á fyrri fundum. Skráð í  trúnaðarmálabók

5.    Fundargerð stjórnar Dvalarheimilisins Höfða lögð fram.

6.    Önnur mál. Erindisbréf félagsmálanefndar - sveitastjóri er að skoða málið.

 

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 19.30

 

 

 

 

MargrétMagnúsdóttir                                      Stefán G. Ármannsson

 

 

Valdís Heiðarsdóttir                                         Dóra Líndal Hjartardóttir

 

 

 

                                  Ingunn Stefánsdóttir



Til baka