Óvirk Æslulýðs - og menningarmálanefnd, fundur nr. 4
Dags. 19.10.2006
4.fundur
Æskulýðs-og menningarmálanefndar Hvalfjarðarsveitar.
haldinn í Vogatungu 19.10. 2006, kl:17:30
Mættir voru
: Ragna Kristmundsdóttir, Bjarni Rúnar Jónsson, Magnús Óskarsson, (varam. f. Bjarka Sig.) Guðmundur Gíslason og Ása Hólmarsdóttir.
Sérstakir gestir fundarins voru Hallfreður Vilhjálmsson oddiviti og Einar Thorlacius sveitarstjóri.
Dagskrá
:
1)
Félagsheimilin.
Oddviti hóf fundinn með umfjöllun um félagsheimilin í Hvalfjarðarsveit.
Fannahlíð mun áfram vera leigð út eins og verið hefur. Í byrjun næsta árs mun
aðstaða fyrir æskulýð -og félagsmál unglinga hafa aðsetur þar einnig.
Auglýsa þarf stöðu húsvarðar við félagsheimilið að Hlöðum, að öðru leyti verða ekki
breytingar þar.
Heiðarborg verður áfram notuð af Heiðarskóla og útleiga Miðgarðs verður með
óbreyttu fyrirkomulagi.
Rætt var um staðsetningu og framtíðarfyrirkomulag bókasafns Hvalfjarðarsveitar.
Ákvörðun tekin síðar.
Ákveðið að formaður nefndar og sveitarstjóri fari yfir málin til að samræma greiðslur
fyrir störf í félagsheimilunum og einnig að skilgreina húsvarðarstarfið.
2)
Vímuefnafræðsla.
Rætt var um vímuefnaforvarnir í sveitarfélaginu og hvort nefndin ætti að beita sér
fyrir slíku starfi. Ása hafði kynnt sér aðeins forvarnanámskeið/fræðslu hjá Maritu.is
og stakk upp á að bjóða upp á slík námskeið í Heiðarskóla í 8.,9. og 10.bekk. Þetta
eru námskeið bæði fyrir nemendur og foreldra þeirra.
Ákveðið að Bjarni og Magnús kynni sér málið hjá Maritu.is og fari þar á fyrirlestur.
Nefndin var sammála um að ábyrgð foreldra er mikil í forvarnarbaráttu og að
heimilin verða að standa sig í þeirri baráttu lika og geta ekki skorast undan
ábyrgðinni.
Ákveðið að senda ályktun nefndar í þessum efnum inn á heimili í Hvalfjarðarsveit.
3)
Styrkur til tónlistarnema.
Umsókn um styrk tónlistarnemana Ásdísar Björgvinsdóttur og Sigríðar Indriðadóttur
vegna ferðar til Póllands.
Samþykkt að mæla með styrkumsókninni til sveitarstjórnar.
4)
Menningarviðburðir í Hvalfjarðarsveit.
Rætt var vítt og breytt um mögulega menningarviðburði sem nefndin gæti staðið fyrir
í sveitarfélaginu, bæði hvað varðar áhugaverð námskeið, skemmtanir og stærri
viðburði.
Hallfreður og Einar yfirgáfu fundinn.
5)
Skuggaráð/ungliðanefnd æskulýðs og menningarmálanefndar.
Ragna kom með hugmynd að 4 nöfnum nemenda í Heiðarskóla í 8. til 10.bekk sem
gætu verið fulltrúar unglinga í nefndinni. Skipun nefndarinnar verður ákveðin síðar en
mun væntanlega hefja störf fyrir lok árs.
6)
Annað
Til að auðvelda umgengni í félagsheimilum sveitarfélagsins, vegna útleigu, kom fram
hugmynd að útbúa tékklista fyrir eigur félagsheimilana. Samþykkt að koma slíkum lista í
framkvæmd.
Einnig ákveðið að þeir sem taka húsin á leigu verða að taka á sig ákveðna ábyrgð er
viðkemur tjóni á eignum. Nefndin þarf að útbúa ábyrgðarskjal fyrir leigutaka.
Fara þarf yfir allan búnað, eldhúsáhöld, leirtau og annað, sem fyrir er i félagsheimilunum
og endurnýja ef þarf svo allur búnaður sé örugglega til staðar. Nefndin mun fela
húsvörðum húsana að annast talningu og yfirferð á búnaði.
Fleira ekki tekið fyrir.
Næsti fundur áætlaður mánudaginn 30.október 20006 í Vogatungu.
Fundargerð ritaði Ása Hólmarsdóttir.
Til baka