Óvirk Æslulýðs - og menningarmálanefnd, fundur nr. 1
Dags. 6.7.2006
Æskulýðs-og menningarmálanefnd Hvalfjarðarsveitar.
Fundargerð
1. fundur haldinn 6. júlí 2006, kl 19:30 að Innrimel 3 í Melahverfi.
Mættir voru: Bjarki Sigurðsson, Bjarni Rúnar Jónson, Ragna Kristmundsdóttir, Guðfinna
Indriðadóttir, Ása Hólmarsdóttir og Hallfreður Vilhjálmsson.
1) Oddviti Hvalfjarðarsveitar, Hallfreður Vilhjálmsson, setti fundinn og sá um
framkvæmd kosningar í embætti nefndar.
Kosningar: Formaður : Ragna Kristmundsdóttir
Varaformaður: Bjarni Rúnar Jónsson
Ritari: Ása Hólmarsdóttir
Vararitari: Bjarki Sigurðsson
Fundir í æskulýðs-og menningarmálanefnd verða fyrst um sinn haldnir hjá formanni
nefndar, í Vogatungu, þar til annað verður ákveðið.
Fundargerðir muna verða ritaðar á tölvu, og birtar á heimasíðu Hvalfjarðarsveitar.
Hallfreður lagði fram erindi sem nefndinni hafa borist og lagði stjórn fundar í hendur
nýs formanns, Rögnu Kristmundsdóttur, og vék því næst af fundi.
2) Erindi frá bæjarstjórn Akraness frá 13.júní 2006, þar sem óskað er eftir tilnefningu
Hvalfjarðarsveitar í stjórn Byggðasafnsins að Görðum, einum aðalmanni og einum
til vara .
Kosning: Aðalmaður : Ragna Kristmundsdóttir
Varamaður: Bjarni Jónsson
Lögð var fram skipulagsskrá Byggðasafnsins í Görðum, frá 12.maí 2006.
3) Bréf frá Eignarhaldsfélaginu Brunabótafélag Íslands (EBÍ) þar sem kynntur er
styrkur fyrir sérstök framfaraverkefni á vegum sveitarfélagsins. Umsóknir um styrk
skulu berast fyrir ágústlok n.k.
Ákvörðun um umsókn vegna styrkverkefnis frestað til næsta fundar.
4) Formaður fór yfir samstarfssamning um bókasafnsþjónustu hreppana sunnan
Skarðsheiðar og Akraness frá 12.maí 2006.
5) Formaður fór yfir samstarfssamning um ýmis málefni á sviði félags-og
íþróttamála, hreppana sunnan Skarðheiðar og Akraness frá 12.maí 2006.
6) Erindi frá Ásgeiri Kristinssyni, formanni Björgunarfélag Akraness, um fulltrúa
frá nefndinni í gæslu á Lopapeysuballi á írskum dögum á Akranesi, sem verður haldið
8.júlí. n.k.
Samþykkt var að formaður nefndar mynd sjá um að finna gæslufulltrúa.
7) Samþykkt að koma á fót sérstakri “unglinganefnd” eða skuggaráði, undir
Æskulýðs-og menningarmálanefnd, sem væri skipuð unglingum og nefndarmönnum.
Tilnefning/kosning í skuggaráð mun bíða haustsins og einnig skilgreining á
vinnuramma.
Fundi slitið. Næsti fundur verður fimmtudaginn 3. ágúst 2006 kl: 18:00 í Vogatungu.
Fundargerð var rituð af Ásu Hólmarsdóttur.
6. júlí 2006
Til baka