a aa aaa
Framkvæmdanefnd um byggingu stjórnsýsluhúss, fundur nr. 14

Dags. 11.12.2007

14. Fundur undirbúningshóps að byggingu stjórnsýsluhúss í Hvalfjarðarsveit. Haldinn að Miðgarði 11.12.2007 kl.17:00.

Á fundinn eru mættir:

Stefán Ármannsson

Dóra Líndal Hjartardóttir

Guðjón Jónasson sem ritaði fundargerð

og Skúli Lýðsson

Stefán setur fundinn.

1. Staða mála.

Haldnir hafa verið tveir verkfundir með LF-Verk. Fylling undir sökkla er hafin.

Stefán og Skúli hafa átt einn fund með Aðalsteini hjá Loftorku og farið yfir teikningar.

Nefndin leggur til að sökklar verði lengdir til frekari styrkingar á gólfplötu. Ljóst er að kostnaður eykst en samt innan upphaflegrar kostnaðaráætlunar.

2. Hvað er framundan.

Athuga þarf með hitakerfi í húsið.

Það þarf að ákveða gluggakerfi í húsið og panta það.

Ganga frá því að fá uppáskriftir meistara fyrir bygginguna.

Það þarf að gera áætlun um kaup á húsbúnaði.

Það þarf að funda með rafteikningu um rafkerfi hússins.

Næsti fundur verður boðaður síðar.

Fundi slitið kl.18:30

Stefán Ármannsson

Dóra Líndal Hjartardóttir

Guðjón Jónasson

Skúli Lýðsson



Til baka