Framkvæmdanefnd um byggingu stjórnsýsluhúss, fundur nr. 10
Dags. 1.10.2007
10. Fundur undirbúningshóps að byggingu stjórnsýsluhúss í Hvalfjarðarsveit. Haldinn að Miðgarði 1.10.2007 kl.15:30.
Á fundinn eru mætt:
Stefán Ármannsson
Dóra Líndal Hjartardóttir
Guðjón Jónasson sem ritaði fundargerð
og Skúli Lýðsson
Stefán setur fundinn.
Fyrir liggur dagsskrá fundarins.
1. Ganga frá samningi við Nýhönnun.
2. Ákveða með framleiðanda á húseiningum.
3. Drög að útboðsgögnum í jarðvegsskipti.
4. Önnur mál.
1. Ganga frá samningi við Nýhönnun.
Samkvæmt áætlun frá Nýhönnun er gert ráð fyrir að hönnunarkostnaður af verkinu verði 12% af verkáætlun. Nefndin felur Stefáni að ganga til samninga við Nýhönnun.
2. Ákveða með framleiðanda á húseiningum.
Ákveðið er að ganga til samninga við Loftorku í Borgarnesi. Smell-Inn á Akranesi dró tilboð sitt til baka.
3. Drög að útboðsgögnum í jarðvegsskipti.
Stefán ræðir við Nýhönnun um að ganga frá útboðsgögnum fyrir jarðvinnu þannig að útboð geti farið í auglýsingu sem fyrst.
4. Önnur mál.
Skúli tekur að sér eftirlit með framkvæmdinni fyrir hönd verkkaupa.
Formaður nefndarinnar mun boða til næsta fundar seinna.
Fundi slitið kl.17:00
Stefán Ármannsson
Dóra Líndal Hjartardóttir
Guðjón Jónasson
Til baka