a aa aaa
Fræðslu- og skólanefnd, fundur nr. 10

Dags. 1.2.2007

10. Fundur Fræðslu- og skólanefndar Hvalfjarðarsveitar 01.02.2007

 

10. fundur Fræðslu- og skólanefndar Hvalfjarðarsveitar

Fimmtudaginn 1. febrúar 2007, kl. 20:00 er haldinn fundur Fræðslu- og skólanefndar Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3. Mættir eru Hlynur M. Sigurbjörnsson, Þórdís Þórisdóttir, Valgerður Jóna Oddsdóttir, Lára Ottesen og Anna Leif Elídóttir sem ritar fundargerð.

Auk þeirra Sigurður Sigurjónsson skólastjóri Skýjaborgar, Helga Stefanía Magnúsdóttir skólastjóri Heiðarskóla, Sara Margrét Ólafsdóttir fulltrúi leikskólakennara, Sólrún Jörgensdóttir fulltrúi foreldra í Skýjaborg og María Hlín Eggertsdóttir fulltrúi foreldra Heiðarskóla.

Dagskrá liggur fyrir í 11 liðum:

1. Setning fundar.

2. Ritari fer yfir fundargerð 7. fundar Fræðslu- og skólanefndar dags. 11. jan. 2007.

3. Ritari fer yfir fundargerðir 8. og 9. fundar Fræðslu- og skólanefndar dags. 18. jan. 2007 og 22. jan. 2007. Þetta voru vinnufundir um fræðslu- og skólamál fyrir Staðardagskrá 21 verkefnið.

4. Mánaðarskýrsla skólastjóra Heiðarskóla fyrir janúar 2007.

5. Mánaðarskýrsla skólastjóra Skýjaborgar fyrir janúar 2007.

6. Ferð skólafólks til Birmingham.

7. Staða mála með viðhorfskönnun fyrir skóla Hvalfjarðarsveitar.

8. Fundargerðir stýrihóps um skólastefnu Hvalfjarðarsveitar, lagðar fram. 1. fundur haldinn 10. jan. 2007 og 2. fundur haldinn 25. jan. 2007.

9. Afrakstur verkefnis Fræðslu- og skólanefndar um Staðardagskrá 21, lagt fram.

10. Skýrsla um mögulega nýtingu Heiðarskóla lögð fram. (Misserisverkefni hóps frá Háskólanum á Bifröst).

11. Önnur mál.

Fundargerð

1. Setning fundar.

  1. Hallgrímur Þ. Rögnvaldsson hefur óskað eftir því, vegna anna, að varamaður hans Lára Ottesen tæki sæti hans sem aðalmaður í Fræðslu- og skólanefnd og situr hann nú sem varamaður hennar.

2. Ritari fer yfir fundargerð 7. fundar Fræðslu- og skólanefndar dags. 11. jan. 2007.

  1. Tölvur voru afhentar kennurum og leiðbeinendum sl. föstudag.
  2. 10. allir 4 punktarnir eru komnir inn í fjárhagsáætlun.

10. Fundur Fræðslu- og skólanefndar Hvalfjarðarsveitar 01.02.2007

3. Ritari fer yfir fundargerðir 8. og 9. fundar Fræðslu- og skólanefndar dags. 18. jan. 2007 og 22. jan. 2007. Þetta voru vinnufundir um fræðslu- og skólamál fyrir Staðardagskrá 21 verkefnið.

4. Mánaðarskýrsla skólastjóra Heiðarskóla fyrir janúar 2007.

  1. Sérgreinakennarar úr Grundaskóla á Akranesi komu í heimsókn þann 17. janúar til skrafs og ráðagerða.
  2. Í dag, 1. feb. var haldið þorrablót í Heiðarskóla og mikið fjallað um þorrann og ýmislegt er honum við kemur.
  3. Foreldraviðtöl með vitnisburðarafhendingum verða vikuna 12. til 16. feb. nk.
  4. Í janúar gistu nemendur á unglingastigi í skólanum eins og hefð er fyrir.

5. Mánaðarskýrsla skólastjóra Skýjaborgar fyrir janúar 2007.

  1. 23. janúar var starfsmannafundur og var farið yfir skipulag næstu vikna.
  2. Þema næstu vikna verður umburðarlyndi.
  3. Tilboð í stækkun leikskólans voru opnuð 31. janúar.

6. Ferð skólafólks til Birmingham.

  1. Bréf skólastjórnenda Heiðarskóla lagt fram, en það er sent til sveitarstjórnar með afriti til Fræðslunefndar. Þar er óskað eftir því að fulltrúi Fræðslu- og skólanefndar og/eða sveitarstjórnar fari með í ferðina. Fræðslu- og skólanefnd tekur jákvætt í erindið og mælir með tillögunni.
  2. Fyrirspurn kemur frá fulltrúa leikskólakennara skýjaborgar um hvort styrkur sem veittur var starfsfólki Heiðarskóla, til fararinnar gildi einnig um starfsfólk leikskólans. Formaður tekur að sér að athuga málið.

7. Staða mála með viðhorfskönnun fyrir skóla Hvalfjarðarsveitar.

  1. 5 tilboð hafa borist.
  2. Ákveðið er að taka lægsta tilboði sem er frá Kennaraháskóla Íslands.

8. Fundargerðir stýrihóps um skólastefnu Hvalfjarðarsveitar, lagðar fram. 1. fundur haldinn 10. jan. 2007 og 2. fundur haldinn 25. jan. 2007.

9. Afrakstur verkefnis Fræðslu- og skólanefndar um Staðardagskrá 21, lagt fram.

  1. Fræðslu- og skólanefnd leggur til að kannað verði hvernig börn eru að nýta afþreyingu og sport á Akranesi.

10. Fundur Fræðslu- og skólanefndar Hvalfjarðarsveitar 01.02.2007

  1. Farið yfir skrifin og lokadrög samþykkt. Þau verða send stýrihóp um Staðardagskrá 21 í Hvalfjarðarsveit.

10. Skýrsla nemenda Bifrastar um mögulega nýtingu Heiðarskóla lögð fram.

  1. Tvær tillögur skoðaðar í kjölinn í skólaskýrslunni. Önnur tillagan er heilsuhótel, og hin stofnun sem tekur á móti heilabiluðum eldriborgurum í hvíldarinnlögn. Formanni falið að afla fleiri eintaka eða fá skýrsluna á tölvutæku formi.

11. Önnur mál.

  1. Fimmtudaginn 15. febrúar verður haldið námskeið fyrir kjörna fulltrúa í nefndum sveitarfélaga sem fara með skólamál. Allir fimm fulltrúar Fræðslu- og skólanefndar fara.
  2. Auglýst hefur verið eftir athugasemdum við deiliskipulag leikskólalóðar í landi Fögrubrekku.
  3. Umfjöllun um heimasíður skólanna og endurnýjun þeirra á sama tíma og heimasíðu Hvalfjarðarsveitar. Fræðslu- og skólanefnd æskir þess að Skýjaborg fái sitt eigið lén.
  4. 1. fundur foreldraráðs Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit var haldinn þann 31.01.2007. Fundargerð lögð fram. Nefndin hefur skipt með sér verkum: Petrína Ottesen er formaður, Ása Hólmarsdóttir ritari og María H. Eggertsdóttir fulltrúi ráðsins á fundum Fræðslu- og skólanefndar. Nokkur umræða um hlutverk og störf foreldraráðs. Einnig rætt um notkun heimasíðu skólans og samskipta- og umsýsluforritsins Mentor.
  5. Fara þarf að huga að útboðum skólaaksturs grunnskólans þar sem samningur um skólaakstur rennur út í lok skólaárs.
  6. Aðeins ein tölva er til nota fyrir 6 starfsmenn leikskólans Skýjaborgar, þ.m.t. leikskólastjóra. Brýn þörf er að fá fleiri tölvur. Fyrirspurn kemur frá fulltrúa leikskólakennara hvort hægt sé að bæta tölvukost leikskólans.

Fræðslu og skólanefnd beinir því til sveitarstjórnar að keyptar verði ein til tvær fartölvur nú þegar til að bæta vinnuaðstöðu við leikskólann.

Áheyrnarfulltrúar fara af fundi kl 22:00

10. Fundur Fræðslu- og skólanefndar Hvalfjarðarsveitar 01.02.2007

  1. Almennar umræður.

Fundi slitið kl 22:22.

____________________________

Hlynur Sigurbjörnsson

____________________________

Þórdís Þórisdóttir

____________________________

Valgerður Jóna Oddsdóttir

____________________________

Lára Ottesen

____________________________

Anna Leif Elídóttir



Til baka