Fræðslu- og skólanefnd, fundur nr. 23
Dags. 3.1.2008
23. fundur Fræðslu- og skólanefndar Hvalfjarðarsveitar
Fimmtudaginn 3. janúar 2008, kl. 20:00 er haldinn fundur fræðslu- og skólanefndar Hvalfjarðarsveitar í Heiðarskóla. Mætt eru: Hlynur M. Sigurbjörnsson, Haraldur Magnússon, Valgerður Jóna Oddsdóttir, Lára Ottesen og Þórdís Þórisdóttir sem ritar fundargerð.
Auk þeirra Sigurður Sigurjónsson skólastjóri Skýjaborgar, Helga Stefanía Magnúsdóttir skólastjóri Heiðarskóla, Helga Harðardóttir fulltrúi kennara Heiðarskóla, María Hlín Eggertsdóttir fulltrúi foreldra Heiðarskóla, Sólrún Jörgensdóttir, fulltrúi foreldra Skýjaborgar.
Dagskrá liggur fyrir í 7 liðum:
1.
Setning fundar.
2.
Vararitari fer yfir fundargerð 22. fundar fræðslu- og skólanefndar dags. 6. desember 2007.
3.
Mánaðarskýrsla skólastjóra Heiðarskóla fyrir desember 2007.
4.
Mánaðarskýrsla skólastjóra Skýjaborgar fyrir desember 2007.
5.
Yfirferð á drögum að fjárhagsáætlun 2008 fyrir Heiðarskóla og leikskólann Skýjaborg.
6.
”Ný menntastefna”. Bréf frá menntamálaráðherra dags. 13. des. 2007.
7.
Önnur mál.
Fundargerð
1.
Formaður bíður fundarmenn velkomna og setur fundinn kl. 20:00.
•
Anna Leif Elídóttir, ritari, hefur sagt sig úr nefndinni. H-listinn mun skipa aðalmann í hennar stað fyrir næsta fund. Önnu Leif er þakkað góð störf fyrir nefndina.
2.
Formaður fer yfir fundargerð 22. fundar fræðslu- og skólanefndar dags. 6. desember 2007.
•
Skólastjórar munu reyna að senda formanni sínar hugmyndir um starfstengt nám fyrir næsta fund.
•
Verið er að vinna að útgáfu skólanámskrár Heiðarskóla.
Haraldur Magnússon kemur á fund kl 20:15.
3.
Mánaðarskýrsla skólastjóra Heiðarskóla fyrir desember 2007.
23. fundur fræðslu- og skólanefndar Hvalfjarðarsveitar
3.1.2008
•
Unglingadeildinni var boðið á dansleik í Varmalandi 18. desember og voru nemendur til fyrirmyndar.
•
Sönghópur undir stjórn Samúels Þorsteinssonar söng við aðventumessu í Saurbæjarkirkju þann 9. des.
•
Niðurstöður úr samræmdum prófum í 4. og 7. bekk liggja fyrir og var árangur nemenda mjög góður að mati kennara Heiðarskóla. Fræðslu- og skólanefnd óskar nemendum og kennurum til hamingju með góðan árangur, en einkunnir voru yfir landsmeðaltali í báðum fögum í báðum bekkjum.
•
Litlu jólin voru haldin þann 20. desember með hefðbundnum hætti.
•
Jólaleyfi hófst að lokinni litlu jóla skemmtun og hefst skólahald aftur þann 3. janúar 2008.
•
Sigríður Vilhjálmsdóttir hefur tekið við starfi skólaliða af Selmu Ólafsdóttur sem lét af störfum um áramót.
4.
Mánaðarskýrsla skólastjóra Skýjaborgar fyrir desember 2007.
•
Reynt er að skapa rólega stemmingu í leikskólanum í desembermánuði.
•
Leikskólinn fékk ljósmyndaprentara að gjöf fyrir jól frá Omnis (áður Tölvuþjónustu Vesturlands).
•
Börnin buðu foreldrum í piparkökur og kakó í desember og söng leikskólakórinn fyrir gesti undir stjórn Hönnu Þóru og vakti kórsöngurinn mikla lukku meðal viðstaddra.
•
Guðrún Magnúsdóttir hefur hafið störf við leikskólann.
•
Árdís hefur tekið að sér deildarstjórn á Dropanum og Ása deildarstjórn á Regnboganum.
5.
Yfirferð á drögum að fjárhagsáætlun 2008 fyrir Heiðarskóla og leikskólann Skýjaborg.
•
Fjárhagsáætlun fyrir leikskólann Skýjaborg.
o
Vantar inn þá liði sem frestað var vegna viðbyggingar leikskólans síðastliðið haust s.s. vagnageymsla, húsgögn, leikföng og búnaður. Auk uppsetningar á leiktækjum á lóð.
o
Ósk um að greiðsla fyrir tónlistarkennslu fari inn á fjárhagsáætlun sem foreldrafélag leikskólans og sveitarstjórn hafa greitt fyrir.
•
Fjárhagsáætlun fyrir Heiðarskóla.
o
Foreldraráð Heiðarskóla mun leita til skólans til að geta staðið fyrir fræðslu- og eða uppákomum.
o
Farið yfir minnisblað skólastjóra með fjárhagsáætlun.
o
Vantar inn kostnað vegna tækjakaupa í Heiðarborg m.a. hlaupabretti.
•
Fjárhagsáætlun fyrir fræðslu- og skólanefnd.
o
Koma þarf inn lið fyrir námskeið / fræðslu.
•
Umræða um tónlistarskóla og tónlistarnám.
6.
“Ný menntastefna”. Bréf frá menntamálaráðherra dags. 13. des. 2007 lagt fram til kynningar.
•
Umræða um stefnuna.
•
Vangaveltur um raunverulega möguleika nemenda í sveitarfélaginu á að vera í grunn- og framhaldsskóla.
7.
Önnur mál.
•
Fræðslu- og skólanefnd beinir því til framkvæmdanefndar um uppbyggingu Heiðarskóla að tekið verði sérstaklega til athugunar aðstaða fyrir tónlistarkennslu í framtíðarhúsnæði Heiðarskóla.
Fundi slitið kl 21:50.
Hlynur Sigurbjörnsson
Lára Ottesen
Þórdís Þórisdóttir
Haraldur Magnússon
Valgerður Jóna Oddsdóttir
Til baka