a aa aaa
Dómnefnd um byggðarmerki, fundur nr. 5

Dags. 30.7.2007

 

 

 

Aukafundur í dómnefnd um byggðamerki Hvalfjarðarsveitar haldinn í Fannahlíð 30. júlí 2007

 

Fundurinn hófst kl. 16.10.  Mætt öll dómnefndin, þ.e. Elísabet Haraldsdóttir,  Anna Leif Elídóttir, Bjarni Dagur Jónsson, Hallfreður Vilhjálmsson og Sævar Ari Finnbogason.  Einnig sat fundinn Einar Örn Thorlacius ritari merkjasamkeppninnar og reit fundargerð.

 

Oddviti setti fundinn með leyfi formanns og skýrði tilefni fundarins.  Upp hefði komið gagnrýni á merkið hjá hluta íbúa sveitarfélagsins.  Oddviti benti á að í raun hefði merkið verið samþykkt á fundi sveitarstjórnar 8. maí sl. en í ljósi framkominnar gagnrýni hefði verið ákveðið að óska eftir sérstökum rökstuðningi dómnefndar fyrir valinu á því merki sem varð í 1. sæti og þess vegna hefði verið boðað til þessa aukafundar. 

 

Það skal áréttað hér að eftir að dómnefndin hafði valið sigurmerkið buðu stjórnendur sveitarfélagsins höfundi að gera grein fyrir merkinu í kynningarbæklingi um merkið.  Dómnefnd ber enga ábyrgð á þeim texta og hann lá ekki fyrir þegar merkið var valið. 

 

Eftir nokkrar umræður meðal dómnefndarfólks um merkið og hvernig það var að lokum valið í fyrsta sæti keppninnar var eftirfarandi samþykkt:

 

Dómnefndin áréttar að við val á merkinu hafi réttu verklagi verið beitt og keppnisskilmálum fylgt.   Merkið varð fyrir valinu vegna þess að dómnefndin var sammála um að það væri gott tákn fyrir Hvalfjarðarsveit,  auk þess að vera einfalt og kröftugt.  Þá er merkið bæði nútímalegt og fornt í senn og vísar þannig í söguna á sama tíma og það vísar fram á veg.  Merkið nýtur sín vel jafnt í litlu sem stóru formi.  Að dómi nefndarinnar hefur merkið alla burði til þess að auka hróður Hvalfjarðarsveitar jafnframt því sem það er eftirminnilegt og vel teiknað. Dómnefndin hvetur sveitarstjórn og íbúa Hvalfjarðarsveitar til að ná sátt um byggðamerkið nýja.

 

Að þessu loknu var fundinum slitið kl. 17:20

 

Elísabet Haraldsdóttir

 

Anna Leif Elídóttir

 

Bjarni Dagur Jónsson

 

Hallfreður Vilhjálmsson

 

Sævar Ari Finnbogason

 

Einar Örn Thorlacius



Til baka