Atvinnumálanefnd, fundur nr. 5
Dags. 1.3.2010
FUNDARGERÐ
5. fundur atvinnumálanefndar Hvalfjarðarsveitar.
Haldinn 1. mars 2010 á Hótel Glym.
Mættir:
Hansína B. Einarsdóttir, Björn Jóhannesson og Guðmundur Gíslason.
Dagskrá
1. Erindi Akranesstofu
2. Skoðunarkönnun um atvinnumál
3. Næstu skref
Fundargerð
• Samþykkt var Hansina og Björn yrðu fulltrúar Hvalfjarðarsveitar í starfshópi um möguleika í ferðaþjónustu sem stýrt verður frá Akranesstofu.
• Skoðunarkönnun um atvinnumál og fleira sem gerð var í vetur verði birt í heild sinni með þeim breytingum að teknar verði útúr henni upplýsingar sem hægt er að persónugreina. Í kjölfar hennar verði ráðgjafi frá SSV hafður til skrafs og ráðagerða fyrir þá sem höfðu nýsköpunarhugmynd þeim að kostnaðarlausu.
• Óskað er eftir því að sveitarstjórn taki afstöðu til hvort og hvaða upphæð sé hægt að leggja til styrktar þeim sem hafa góða nýsköpunarhugmynd
Fleira var ekki rætt og fundi slitið.
Hansína B. Einarsdóttir
Björn Jóhannesson
Guðmundur Gíslason
Til baka