17. febrúar 2010
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi Hafnaráss í landi Hafnarsels Hvalfjarðarsveit.
Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 25 gr. Skipulags-og byggingarlaga nr.73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hafnaráss í landi Hafnarsels Hvalfjarðarsveit.
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við aðalskipulag Leirár og Melahrepps 2002-2014.
Breytingin felur í sér breytingu á byggingarskilmálum á svæðinu og lóð nr. 7 stækkar.
Tillagan liggur frammi á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar frá 22. febrúar 2010 til 22. mars 2010 á milli 09:00 og 16:00 daglega.
Athugasemdum skal skila á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar Innrimel 3, 301 Akranes fyrir 5. apríl 2010 og skulu þær vera skriflegar.
Þeir sem ekki gera athugasemd innan tilgreinds frests teljast samþykkir tillögunni.
Skipulags- og byggingarfulltrúi.
Til baka