17. febrúar 2010
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi Hafnaráss í landi Hafnarsels Hvalfjarðarsveit.
Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 25 gr. Skipulags-og byggingarlaga nr.73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hafnaráss í landi Hafnarsels Hvalfjarðarsveit.
18. desember 2009
Stóra-Fellsöxl - Frummatsskýrsla
Hvalfjarðarsveit vinnur að mati á umhverfisáhrifum efnistöku í landi Stóru-Fellsaxlar, í samvinnu við UMÍS ehf. Environice og er verkefnisstjóri Ragnhildur Helga Jónsdóttir, umhverfisfræðingur hjá fyrirtækinu.
Nú liggur fyrir frummatsskýrsla sem hefur verið tilkynnt til athugunar hjá Skipulagsstofnun. Skýrslan liggur frammi til kynningar hjá Skipulagsstofnun, Þjóðarbókhlöðunni, skrifstofu Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3 og hér er hún auk þess aðgengileg á rafrænu formi.
3. nóvember 2009
Auglýsing um breytt deiliskipulag lóða á stóriðjusvæði við Grundartanga, Hvalfjarðarsveit.
Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 25 gr. Skipulags-og byggingarlaga nr.73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi lóða á stóriðjusvæði við Grundartanga, Hvalfjarðarsveit.
29. október 2009
Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar 2008-2020
Aðalskipulag Hvalfjarðarsveitar lýsir stefnumörkun sveitarstjórnar um þróun byggðar og landnotkun á árunum 2008-2020 eða næstu 12 ár. Skipulagið byggir að stofni til á því skipulagi sem til var í hreppunum fjórum sem Hvalfjarðarsveit er sameinuð úr. Skipulagið markar meginlínur í landnotkun og á það við um byggingarland sem og landbúnaðarland og á að vera til leiðbeiningar um þróun og uppbyggingu sveitarfélagsins.
6. júlí 2009
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi í Hvalfjarðarsveit.
Auglýsing um breytingu á deiliskipulagi Miðás og Efstaás, Hvalfjarðarsveit.
Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 25 gr. Skipulags-og byggingarlaga nr.73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Miðás og Efstaás, Hvalfjarðarsveit.
Deiliskipulagstillagan er í samræmi við aðalskipulag Hvalfjarðarstrandarhrepps 2002-2014.
Breytingin felur í sér breytingu á byggingarskilmálum þar sem nýtingahlutfall verður 0,04, byggður flötur ekki stærri en 240 m2 og hámarksfjöldi húsa á lóð þrjú, þar með talið geymsluhúsnæði.
2. janúar 2009
Auglýsing um breytt deiliskipulag Iðnaðar- og hafnarsvæðis á Grundartanga, vestursvæði, Hvalfjarðarsveit.
Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 25 gr. Skipulags-og byggingarlaga nr.73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Iðnaðar- og hafnarsvæðis á Grundartanga vestursvæði, Hvalfjarðarsveit.
26. nóvember 2008
Auglýsing um breytingu á aðalskipulagi Skilmannahrepps 2002-2014, Hvalfjarðarsveit.
Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 21 gr. Skipulags- og byggingarlaga nr.73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á aðalskipulagi Skilmannahrepps 2002-2014 í Hvalfjarðarsveit- breytt landnotkun í Melahverfi.
Tillagan felur í sér að þéttleiki byggðar verði aukinn í 20 íbúðir á ha. og að gert verði ráð fyrir verslunar og þjónustusvæði út við Þjóðveg 1.
25. nóvember 2008
Auglýsing um deiliskipulag Laxárbakka, Hvalfjarðarsveit.
Samkvæmt ákvæðum 1. mgr. 25 gr. Skipulags-og byggingarlaga nr.73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi Laxárbakka, íbúðar, verslunar- þjónustusvæðis, Hvalfjarðarsveit.