a aa aaa

16. febrúar 2010

Sameiginlegur fundur sveitarfélaganna.

Sveitarfélögin Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshreppur hafa á undanförnum árum haft með sér samstarf svo sem kostur er.  Og hafa  kjörnir fulltrúar og starfsmenn sveitarfélaganna skoðað hver á sínu sviði möguleika á auknu samstarfi og samvinnu. Á undanförum árum hafa fulltrúarnir hist og farið yfir ýmis sameiginleg mál og að auki verið með kynningu á hverju sveitarfélagi svo sem kostur er.  Nýlega hittist hópurinn í Hvalfjarðarsveit.

Á sameiginlegum fundum hefur verið farið yfir mál sem í brennidepli eru hverju sinni og í ár var farið yfir mál er varða væntanlegt útboð á sorphirðu  og undirbúningsvinnu sem er í gangi vegna þess. Fjallað var um vá vegna gróðurelda í Skorradal og almennt um hugsanlega gróðurelda. Einnig var rætt um sameiginlegt slökkvilið fyrir öll sveitarfélögin. Á fundinum voru líflegar umræður um öll þessi efni.

 

Sveitarfélögin, Skorradalshreppur og Hvalfjarðarsveit buðu til fundarins að þessu sinni. Að afloknum fundi var farið að Laxárbakka tekið upp léttara hjal, staðurinn skoðaður og léttar veitingar  þegna yfir sögum og fréttum frá sveitarfélögum öllum.

 

Myndir frá fundinum í myndaalbúmi

 

Til baka

Atburðadagatal

S
M
Þ
M
F
F
L
28
29
30
1
2
3

4
5
6
7
8
9




1
2
3
4
5
6
7

Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður

Framundan