5. febrúar 2010
Dagur leikskólans í Hvalfjarðarsveit
Dagur leikskólans var haldinn hátíðlegur í leikskólanum Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit í dag. Dagurinn byrjaði á því að börnin flögguðu íslenska fánanum með kennurum sínum, síðan var gengið yfir að stjórnsýsluhúsi þar sem börnin tóku til við að teikna listaverk á stéttina og á bílastæðið með krítum. Kalt var í veðri og því sást í margar rauðar kinnar á ánægðum börnum sem nutu þess að láta ljós sitt skína. Hvalfjarðarsveit óskar leikskólanum til hamingju með daginn.
Myndir í myndaalbúmi
Til baka