3. febrúar 2010
Hvalfjarðarsveit auglýsir laust til umsóknar
Framkvæmdaeftirlit með nýbyggingu Heiðarskóla.
Um er að ræða hlutastarf sem felst m.a. í eftirliti með framkvæmd verksins á grundvelli útboðsgagna og samninga, verkþáttarýni, vöktun á innra eftirliti verktaka, úttektum og stjórn reglulegra verkfunda.
Framkvæmdin:
Um er að ræða 2000m2 grunnskólabyggingu fyrir 130 nemendur. Byggingin er tveggja hæða að stærstum hluta, steinsteypt, en burðarvirki þaks er úr timbri og stáli. Reiknað er með að byggingin verði reist í einum áfanga, með fullfrágenginni lóð og að skólahald hefjist haustið 2011.
Reynslu af sambærilegum verkefnum er krafist og tækni- eða verkfræðimenntun er kostur. Umsækjendur skili gögnum um starfsreynslu sína og menntun. Umsókn skal einnig fylgja lýsing á hugmyndum viðkomandi að tilhögun og nálgun verkefnisins.
Allar nánari upplýsingar veitir Skúli Lýðsson skipulags- og byggingarfulltrúi á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar í síma 4338500 og Arnheiður Hjörleifsdóttir formaður verkefnisstjórnar í síma 8916626.
Frestur til að skila inn umsóknum um starfið er til 10. febrúar n.k.
Umsóknir berist til Hvalfjarðarsveitar
– merkt framkvæmdaeftirlit. Innrimel 3 301 Akranes.
Til baka