1. febrúar 2010
Opið hús í Heiðarborg
Frá og með 1. febrúar býður ungmennafélagið aftur upp á opið hús í Heiðarborg fyrir börn á leikskólaaldri og foreldra þeirra. Opið er á mánudögum á milli kl. 16 og 17.
Tilvalið að koma með börnin og leika í íþróttasalnum þar sem sett er upp þrautabraut, boltaleikir o.fl. Sundlaugin er einnig opin á þessum tíma.
Tilkynning frá Ungmenna- og íþróttafélagi Hvalfjarðarsveitar.
Til baka