30. janúar 2010
Sigur í fyrsta leik!
Það áttu sér stað nokkur tímamót í íþróttastarfi í Hvalfjarðarsveit sl. föstudag þegar Ungmennafélag Hvalfjarðarsveitar keppti á sínu fyrsta móti undir merkjum félagsins. Um var að ræða vináttuleik í körfuknattleik og var viðureignin háð á heimavelli andstæðinganna í Borgarnesi, en keppt var við lið 1. flokks Skallagríms.
Leikurinn var spennandi allan tímann, en okkar menn voru þó yfir lengst af. Það er skemmst frá því að segja að Ungmennafélag Hvalfjarðarsveitar bar sigur úr býtum og var lokastaðan 55 stig á móti 53 stigum Skallagríms. Þjálfarar liðsins, Guðjón og Guðmundur, eru ánægðir með úrslitin og segja þau lofa góðu. Það fengu allir að spreyta sig og liðsheildin var góð. Fyrir áhugasama þá eru fleiri leikir áformaðir á næstunni, og stefnt er að leik á Akranesi sunnudaginn 7. febrúar.
Lið Hvalfjarðarsveitar: Baldvin, Jón Þór, Þorleifur, Ásbjörn, Sigurður Víðir, Guðmundur, Guðjón og Arnar. Með á myndinni eru öflugir stuðningsmenn liðsins þau Bjartey og Elvar.
Til baka
Til hamingju.
- 30.1.2010 22:19:26
Til hamingju strákar þið eruð flottir.
Kv Birgitta
Til hamingju
Til hamingju bara flottastir kv María Lúísa