Til leigu í skrifstofuhótelinu í Hvalfjarðarsveit.
Til leigu eru þrjú skrifstofuherbergi í nýja stjórnsýslu-húsinu í Hvalfjarðarsveit.
Um er að ræða glænýtt sex herbergja skrifstofuhótel. Húsið er vel staðsett, við Innrimel og miðsvæðis í Hvalfjarðarsveit.
Hvert herbergi er um 19,7 m2. Innifalið í leigu eru afnot af sameiginlegu fundarherbergi, góðri sameiginlegri kaffistofu ofl.
Allar nánari upplýsingar veitir Skúli Lýðsson á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar.
Til umsóknar:
Rekstraraðili að félagsheimilinu að Hlöðum.
Hvalfjarðarsveit auglýsir eftir áhugasömum aðilum til þess að taka að sér rekstur félagsheimilisins að Hlöðum.
Í félagsheimilinu er aðstaða til mjög fjölbreyttrar starfsemi svo sem; menningartengd starfsemi og veislu- og veitingarekstur.
Við félagsheimilið er gott tjaldsvæði bæði fyrir almenn tjaldsvæði sem og fellihýsa- og hjólhýsa svæði.
Óskað er eftir að áhugasamir aðilar skili greinargerð um hugmyndir sínar um starfsemi á svæðinu. Ef hugmyndir eru áhugaverðar verður gerður sérstakur samningur við Hvalfjarðarsveit um reksturinn.
Upplýsingar um áhugasaman rekstraraðila, ásamt hugmyndum sem umsækendur hafa um starfsemi að Hlöðum óskast sendar til;
Hvalfjarðarsveitar, bt. sveitarstjóra, Innrimel 3, Hvalfjarðarsveit, 301 Akranes.
Frestur er til að skila inn hugmyndum og tillögum er til 12.
febrúar 2010.
Til umsóknar:
Umsjónaraðili að sundlauginni að Hlöðum.
Hvalfjarðarsveit auglýsir eftir áhugasömum aðilum til þess að sjá um sér umsjón og rekstur sundlaugarinnar að Hlöðum.
Um er að ræða starf á opnunartíma sundlaugarinnar ,frá lokum maí og fram í miðjan ágúst. Viðkomandi þarf að sjá um viðhald og allan rekstur á lauginni.
Umsóknum skal skila á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar fyrir 12. febrúar nk.
Umsóknareyðublöð; www.hvalfjardarsveit.is
Sveitarstjóri