15. janúar 2010
Tilkynning frá Þorragoða
Hæstvirtur Þorragoði kunngjörir;
Þorra skal blótað í Hvalfjarðarsveit laugardaginn 23. janúar 2010.
Blótinu hefur verið valin staður á Hlöðum á Hvalfjarðarströnd.
Þorramatur er frá Galito, veislustjórn í höndum Hallgríms Ólafssonar leikara og dansleikur með Ödda og vélvirkjunum fram á rauða nótt.
Húsið opnar kl: 20:00. Borðhald hefst kl: 20:30
Miðaverð fyrir herlegheitin eru 5300 kr og miðapantanir sunnudaginn 17. janúar hjá:
Pétri Sigurjónssyni í síma -8426415, netfang: petur@gtt.is og Sigurði Sigurjónssyni , sími 6954574 netfang: sigurdur@hvalfjardarsveit.is.
Miðaverð á dansleik er 3000 kr og aðeins í forsölu. Aldurstakmark 18 ár. Sækja þarf miða að Hlöðum fimmtudaginn 21. janúar kl. 17:00 - 20:00. Einnig verður hægt að velja borð á sama tíma. Miðar afhentir gegn staðgreiðslu í íslenskum krónum.
Gestir koma með eigin drykkjarföng.
Með þorrakveðju
Pétur Sigurjónsson, Þorragoði.
Til baka