31. desember 2009
Áramótabrennur í Hvalfjarðarsveit.
Þrjár brennur verða í Hvalfjarðarsveit um áramótin.
Í dag gamlársdag, verður kveikt í áramótabrennu við Melahverfi klukkan 17:00. Brennan verður á sama stað og í fyrra eða í malargryfjunni norðan við hverfið.
Við Másstaði verður kveikt í áramótabrennu klukkan 21:00.
Að Bjarteyjarsandi verður áramótabrenna líkt og hefð er fyrir í fjöldamörg ár. Kveikt verður í brennunni klukkan 20:30.
Sendi íbúum Hvalfjarðarsveitar sem og landsmönnum öllum bestu óskir um gæfuríkt komandi ár, þakka af alhug samstarf og samvinnu á árinu sem er að líða.
Laufey Jóhannsdóttir, sveitarstjóri.
Brennustjórar eru;
Bjarteyjarsandur, Guðjón Jónsson.
Másstaðir, Hrafn Björnsson.
Melahverfi, Pétur Sigurjónsson.
Til baka