a aa aaa

14. desember 2009

Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar samþykkt.

Fjárhagsáætlun Hvalfjarðarsveitar var tekin til síðari umræðu í sveitarstjórn þann 8. desember sl og samþykkt samhljóða.

 

Fjárhagsáætlunin fyrir árið 2010 er nú lögð fram við erfiðar aðstæður líkt og við síðustu fjárlagagerð.  Nánast allar forsendur eru ófyrirséðar en áætlunin sem hér er lögð fram byggir að hluta til á upplýsingum frá Fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna og þeim gögnum sem þar voru lögð fram.  Jafnframt er horft til spár Seðlabanka Íslands.  Frumvarpið byggir á amk. 3% samdætti í útsvarstekjum, óbreyttum Jöfnunarsjóðsframlögum og 3% samdrætti í fasteignagjaldastofni frá áætlun ársins 2009.

Áhrifa atvinnuleysis og samdráttar er farið að gæta í rauntölum ársins 2009 sem frumvarpið byggir á að megin stofni til.  Við gerð frumvarpsins var forstöðumönnum sem og forsvarsmönnum nefnda gert að koma með tillögur og gengið var út frá sparnaði.  Reynt hefur verið að fara ofan í alla kostnaðarliði og dregið úr kostnaði svo sem frekast er unnt.  Gert er ráð fyrir óbreyttri starfsemi grunn- og leikskóla.

Leiðbeinandi launahækkanir við áætlunargerðina eru hækkun heildarlauna skv. kjarasamningum og hækkun á tryggingargjaldi úr 5.31% í 7.0%.  En ljóst er að það þarf að beita ákveðnum hagræðingaraðgerðum til að ná fram rauntölulækkunum.

 Í samvinnu við forstöðumenn hefur verið leitað leiða til að hagræða í rekstri, lágmarka kostnað og bæta rekstrarniðurstöðu

 

Tekjur

Áætlunargrunnur fjárhagsáætlunar 2010 byggir að grunni til á endurskoðaðri áætlun ársins 2009 sem hefur verið leiðréttu að raunkostnaði ársins 2009 þar sem það hefur átt við vegna magnbreytingar.

 

Sala eigna

Þegar frumvarpið er lagt fram stendur yfir forval vegna framkvæmda við nýjan Heiðarskóla. Í forvalinu er gert ráð fyrir að áhugasamir þátttakendur taki eignir upp í verkið og lágmarkseignaupptaka er 180 millj. kr.  Gert er ráð fyrir að útboðstölur verði ljósar í byrjun febrúar 2010.

Rekstrartekjur Hvalfjarðarsveitar eru áætlaðar árinu 2010, 526,3 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi.

Álagningarhlutfall útsvars verður óbreytt frá yfirstandandi ári 13,03%.  Fasteignagjöld eru óbreytt frá yfirstandandi ári sem og lóðaleiga.

 

Gjöld

Rekstrargjöld sveitarfélagsins að meðtöldum afskriftum námu 429,2 millj. kr. samkvæmt rekstrarreikningi.

Laun og launatengd gjöld á árinu eru áætluð 205,2 millj. kr. Ársverk hjá sveitarfélaginu eru áætluð um 50 og starfsmenn um 60.

Fjárfrekasti málaflokkur sveitarfélagsins, fræðslu- og uppeldismál, eru um 54% af skatttekjum, eða 257 millj. kr.

 

Kostnaðargrunnur yfirfarinn.

Við gerð ramma fyrir hvern einstaka málaflokk og deild var kostnaðargrunnur yfirfarinn af fagnefnd og hann síðan sendur forstöðumönnum til endurskoðunar þar sem það átti við til endanlegrar skoðunnar.  Þessi rammi er síðan notaður sem stjórntæki til að vinna með á komandi rekstarári og er því leiðbeinandi fyrir forstöðumenn stofnanna sem bera ábyrgð á að rekstur verði innan áætlunarinnar. Mikið hefur verið unnið að hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins að undanförnu og hefur öll vinna við fjárhagáætlunina miðast við það.  Allir vilja leggjast á eitt til að ná þessum markmiðum sem eru raunsæ miðað við þá stöðu sem almennt er í þjóðfélaginu.

 

Góð rekstrarafkoma

Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt rekstrarreikningi er jákvæð um106,1 millj. kr. og gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 102 millj. kr., eða tæplega 20% af tekjum

 

Handbært fé og fjárfestingahreyfingar

Handbært fé í árslok er áætlað um 61 millj. kr.

Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum er áætluð 451,2 millj. kr. í eignarhlutum og ný langtímalán verði 100 millj.kr.  Þessir fjármunir eru áætlaðir til nýbyggingar Heiðarskóla sem er stærsta einstaka framkvæmd Hvalfjarðarsveitar á árinu 2010.

 

Efnahagsreikningur

Áætlunin gerir ráð fyrir að í árslok verði eignir sveitarfélagsins samtals 1.852,2 millj. kr. og hækki um 333,7 millj. kr. frá fyrra ári.

Heildarskuldir sveitarfélagsins eru áætlaðar í árslok 196,7 millj. kr.  Sem er aðeins rúmlega 10% af eignunum í árslok 2010.

Eigið fé sveitarfélagsins í ársok 2010 áætlað 1.852.2 millj. kr.

 

Stöndum vörð um velferðarkerfið og um störfin.

Fjárhagsáætlunin var samþykkt samhljóða í sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar þann 8. desember. Hvalfjarðarsveit stendur fjárhagslega vel og miðað við forsendur fjárhagsáætlunarinnar er gert ráð fyrir viðhaldsframkvæmdum að upphæð 13,8 millj. kr.

Megin framkvæmd Hvalfjarðarsveitar er eins og áður sagði bygging nýs Heiðarskóla en til hennar er áætlað 450 millj.kr.

Staða sveitarfélagsins er sterk og Hvalfjarðarsveit stendur vörð um bæði velferðarkerfið og störfin í sveitarfélaginu.

 

 

Laufey Jóhannsdóttir sveitarstjóri

 

Til baka

Atburðadagatal

S
M
Þ
M
F
F
L
28
29
30
1
2
3

4
5
6
7
8
9




1
2
3
4
5
6
7

Fyrri mánuður
júlí 2010
Næsti mánuður

Framundan