Fréttir
Hótel Glymur besta hótelið?
	<description>Hótel Glymur í Hvalfirði er nú í efsta sæti sem besta hótel á Íslandi ef marka má umsögn notenda á síðunni Trip Advisor. Á þessari síðu gefa gestir hótel- og veitingastaða umsagnir og fær staðurinn fjóra og hálfa stjörnu. Trip Advisor er stærsti og virtasti ferðavefur í heiminum þannig að þetta er mikil rós í hnappagat eigenda Hótel Glyms.
Sjá nánar á Trip Advisor með því að smella HÉR</description>
82. fundur sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar
	<description>Þriðjudaginn 9. mars verður haldinn 82. fundur sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.  Fundurinn verður haldinn í stjórnsýsluhúsinu og hefst hann kl. 16 að vanda.  Hér er hægt að nálgast dagskrá fundarins.</description>
Sveitarstjórn samþykkir tilboð Eyktar í Heiðarskóla.
	<description>Á 81. fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar sem haldinn var í gær 2. mars var eftirfarandi bókun samþykkt;
9. 0912032 - Útboð vegna nýbyggingar Heiðarskóla.
Á grundvelli tilboða í nýbyggingu hefur VSÓ lokið yfirferð yfir þau boð sem bárust frá ÍAV, Eykt ehf., Já verki, Vestfirskum Verktökum. Tilboðin voru opnuð 18. febrúar 2010.
Tillaga verkefnisstjórnar;
Tilboð bárust frá fjórum aðilum, ÍAV, Eykt, Jáverk og Vestfirskum verktökum. Alls bárust 4 aðaltilboð og 9 frávikstilboð. Frávikstilboð voru heimiluð í útboðinu en forsendur þeirra voru:
• Engar eignir teknar uppí sem hluti af greiðslum.
• Aðrar byggingartæknilegar lausnir en kveðið er á um í útboðsgögnum, t.d. forsteyptar einingar og sv.frv.
Samkvæmt mati VSÓ ráðgjafar og ákvæðum útboðsgagna er fráviksboð 1. frá Eykt hagstæðast. Í samræmi við það leggur verkefnisstjórn til við sveitarstjórn að leitað verði samninga við Eykt á grundvelli þess.
Fráviksboð númer eitt. frá Eykt hljóðaði uppá kr. 485.432.178.- sem er um 80% af kostnaðaráætlun.
Oddviti ræddi fram komna tillögu og lagði til að tilboði Eyktar í byggingu nýs Heiðarskóla verði tekið.
Ása Helgadóttir vakti athygli á mögulegu vanhæfi sínu og óskaði eftir að fundurinn úrskurðaði um hæfi sitt. Fimm sveitarstjórnarmenn töldu hana hæfa; Hallfreður Vilhjálmsson, Arnheiður Hjöleifsdóttir, Stefán Ármannsson, Hlynur Sigurbjörnsson og Elísabet Benediktsdóttir. Ása Helgadóttir og Sigurður Sverrir Jónsson greiddu atkvæði gegn úrskurðinum. Niðurstaða. Ása Helgadóttir óskaði eftir að yfirgefa fundinn og sæti hennar tók, Dóra Líndal. Stefán Ármannsson vakti athygli á mögulegu vanhæfi sínu og óskaði eftir að fundurinn úrskurðaði um hæfi sitt; Niðurstaða Hlynur Sigurbjörnsson, Hallfreður Vilhjálmsson og Arnheiður Hjörleifsdóttir telja hann hæfan, Sigurður Sverrir Jónsson, Elísabet Benediktsdóttir og Dóra Líndal telja hann vanhæfan, Stefán Ármannsson situr hjá. Stefán Ármannsson óskaði eftir að víkja af fundinum og Björgvin Helgason tók sæti hans.
Tillagan um að gengið verði til samninga við Eykt samanber framangreinda bókun samþykkt með fimm atkvæðum. Sigurður Sverrir Jónsson og Elísabet Benediktsdóttir sitja hjá við afgreiðsluna um samning við Eykt.
Jafnframt verði sveitarstjóra falið að ganga frá samningum við Eykt og að með í samningagerðinni verði Þorbergur Karlsson frá VSÓ ráðgjöf og lögmaður sveitarfélagsins.
Stax verður hafist handa við samingana og framkvæmdir við skólann í kjölfarið.</description>
81. fundur sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.
	<description>Í gær þriðjudaginn 2. mars var haldinn 81. fundur sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar, um aukafund var að ræða.
Hér er hægt að nálgast fundargerð fundarins.</description>
Kjörfundur í Hvalfjarðarsveit
Kjörfundur stendur frá kl. 9:00 til kl. 18:00
Saurbæjarprestakall
	<description>Guðþjónusta verður í Hallgrímskirkju í Saurbæ sunnudaginn 28. febrúar kr. 14.00.  Örn Magnússon organisti og Marta Guðrún Halldórsdóttir söngkona leiða almennan safnaðarsöng.
Aðalsafnaðarfundur Saurbæjarsóknar verður haldinn í Hallgrímskirkju í Saurbæ mánudaginn 8. mars kl. 20.00.</description>
Framlagning kjörskrár í Hvalfjarðarsveit 2010
	<description>Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram á að fara þann 6. mars 2010, verður lögð fram skv. ákv. 26. gr. laga nr. 24/2000 með síðari breytingum þann 27. febrúar 2010.
Kjörskráin mun liggja frammi til skoðunar á skrifstofunni að Innrimel 3  mánudag - fimmtudag frá kl. 09.30 - 15.30 og föstudag frá kl. 09:30 – 14:00.
Allir íslenskir ríkisborgarar sem náð hafa 18 ára aldri á kjördag (fæddir 6. mars 1992 eða fyrr) eiga að vera á kjörskrá þar sem lögheimili var skráð þ. 13. febrúar 2010, þ.e. þremur vikum fyrir kjördag. Flutningar innan sveitarfélags eða milli sveitarfélaga eftir þann tíma, breyta engu um staðsetningu í kjörskrá.
Þeir íslenskir ríkisborgarar sem dvelja erlendis og hafa verið þar styttra en í átta ár, eiga kosningarétt í því sveitarfélagi sem þeir áttu síðast lögheimili í. Þeir íslenskir ríkisborgarar sem hafa dvalið erlendis lengur en í átta ár, en sóttu um skráningu í kjörskrá fyrir 1. desember 2009, eiga kosningarétt í því sveitarfélagi sem þeir áttu síðast lögheimili í.</description>
Leikskólinn Skýjaborg óskar eftir starfsmanni.
	<description>Leikskólinn Skýjaborg óskar eftir starfsmanni til afleysinga. 
Viðkomandi þarf að getað hafið störf 1. mars 2010. Umsóknir þurfa að berast fyrir 25. febrúar 2010. 
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 433-8790, 897-8792 eða í tölvupósti skyjaborg@hvalfjardarsveit.is</description>
Heiðarskóla vantar kennara í apríl og maí.
	<description>Vegna fæðingarorlofs vantar Heiðarskóla kennara í apríl og maí.  Um er að ræða kennslu í stærðfræði á unglingastigi og ensku á unglingastigi og miðstigi.  Um er að ræða fulla stöðu. Nánari upplýsingar gefur Helga Stefanía í síma 8628920 netfang: helgasm@heidarskola.is</description>
Viðskiptasamningur við Landsbankann
	<description>Á mánudaginn var undirritaður samningur um viðskipti milli Hvalfjarðarsveitar og Landsbankans. Um er að ræða heildarsaming sem nær yfir öll bankaviðskipti Hvalfjarðarsveitar. 
Það skipti máli að hafa þessa þjónustu nærtæka en Hvalfjarðarsveit var áður með viðskipti okkar við Kaupþing banka sem nú er Arion banki. Þegar ákveðið var að loka útibúi þess banka á Akranesi var ástæða til þess að endurskoða málin enda var samningur okkar við bankann runninn út og því réttur tímapunktur núna.</description>
Tilboð í nýframkvæmdir við Heiðarskóla opnuð.
	<description>Fimmtudaginn 18. febrúar  kl. 11.00 voru opnuð, í lokuðu útboði í framhaldi af forvali, tilboð vegna nýframkvæmda við  nýjan Heiðarskóla. Opnun fór fram á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3
Eftirfarandi tilboð bárust;
ÍAV hf.  Eftirfarandi eignir verði teknar sem greiðsla fyrir verkið;  malarnáma, félagsheimilið Fannarhlíð og þriggja íbúða raðhús.  kr. 764.100.609,-
ÍAV hf. Frávikstilboð 1. án eigna kr. 606.362.230,-,   Frávikstilboð 2.  Greiðsla með malarnámu kr. 576.362.230,-. Frávikstilboð  3. Tilboð með öðrum gluggaprofil lækkun tilboða um kr. 10.000.000,-. Frávikstilboð 4. með annari gerð innihurða og inniglugga lækkun tilboða um kr. 8.000.000,-
Eykt ehf.  Eftirfarandi eignir verði teknar sem greiðsla fyrir verkið; malarnáma, félagsheimilið Fannarhlíð og þriggja íbúða  raðhús kr. 627.722.391,-.
Eykt ehf. Frávikstilboð   án eigna kr. 485.432.178,-.
Jáverk ehf Eftirfarandi eignir verði teknar sem greiðsla fyrir verkið; malarnáma, félagsheimilið Fannarhlíð og þriggja íbúða raðhús kr. 674.440.490,-
Jáverk ehf. Frávikstilboð 1. án eigna kr. 504.482.759,- Frávikstilboð 2. Annað verðmat á eignum í aðaltilboði kr. 508.482.759.  Mat Jáverks:  malarnáma kr. 25.000.000,- Fannahlíðkr. 12.000.000,-  þriggja íbúða raðhús kr 15.000.000,-
Vestfirskir Verktakar  Tilboð 1.  eftirfarandi eignir verði teknar sem greiðsla í verkið;  félagsheimilið Fannarhlíð, eldra skólahúsnæði Heiðarskóla og þriggja íbúða raðhús  kr. 736.859.962,-
Tilboð  2.  eftirfarandi eignir verði teknar sem greiðsla í verkið; Malarnáma, félagsheimilið Fannarhlíð og þriggja íbúða raðhús kr. 736.859.962,-
Vestfirskir Verktakar frávikstilboð 1.  án eigna kr. 597.662.525,-
Kostnaðaráætlun hönnuða hljóðar upp á kr. 603.500.000,- Athugasemdir eftir opnun; Engar</description>
Söngfuglar á öskudag
	<description>Kátur hópur barna í Hvalfjarðarsveit tók þátt í öskudeginum með hefðbundnum hætti, þau klæddust hinum ýmsu búningum. Súpermenn, prinsessur, ræningjar og Sollur gengu um Melahverfi og komu við í stjórnsýsluhúsi og sungu hátt og snjallt fyrir smá glaðning sem allir kunnu vel að meta.</description>
Sameiginlegur fundur sveitarfélaganna.
	<description>Sveitarfélögin Akraneskaupstaður, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit og Skorradalshreppur hafa á undanförnum árum haft með sér samstarf svo sem kostur er.  Og hafa  kjörnir fulltrúar og starfsmenn sveitarfélaganna skoðað hver á sínu sviði möguleika á auknu samstarfi og samvinnu. Á undanförum árum hafa fulltrúarnir hist og farið yfir ýmis sameiginleg mál og að auki verið með kynningu á hverju sveitarfélagi svo sem kostur er.  Nýlega hittist hópurinn í Hvalfjarðarsveit.</description>
FRUMKVÖÐULL VESTURLANDS 2009.
	<description>Frumkvöðlaverðlaun Vesturlands voru afhent í fyrsta skipti á aðalfundi SSV sem haldinn var í september 2006 og var það Sparisjóður Mýrasýslu sem hlaut verðlaunin vegna ársins 2005. Árið 2006 var það hugmyndafræði All senses sem hlaut verðlaunin, 2007 var það Sjávarrannsóknarsetrið Vör og 2008 var það Kjarnafiskur.
Tilgangurinn með verðlaununum er að styrkja og vekja athygli á öflugu frumkvöðla-starfi á Vesturlandi. Dugnaður og frumkvæði eru mikilvægir eiginleikar í sérhverju samfélagi, ekki síst í smáum. Þessir eiginleikar jafnvel fárra einstaklinga geta skipt sköpum um það hversu lífvænlegt er að búa í litlu samfélagi í dreifbýlinu.
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi óska nú eftir tilnefningum um einstaklinga/fyrirtæki sem skara fram úr í þróun nýrrar vöru, þjónustu eða viðburða í landshlutanum og eru þess verðir að hljóta sæmdarheitið:  Frumkvöðull ársins 2009 á Vesturlandi.
Í ljósi breyttra efnahagslegra forsenda hefur verið ákveðið að taka upp samstarf við Vaxtarsamning Vesturlands og veita peningaverðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í keppninni. Verkefnin þurfa að styðja með beinum hætti við uppbyggingu atvinnulífs á Vesturlandi.</description>
Þorrablót UMF Þrasta
	<description>Þorrablót UMF Þrasta á sextugasta starfsári félagsins verður haldið í Miðgarði laugardaginn 20. febrúar 2010.
Húsið opnar 20:30, borðhald hefst kl: 21:00.
Hjómsveitin Öddi og vélvirkjarnir leika fyrir dansi.</description>
Sýnt frá Meistaradeild Vís í kvöld
	<description>Jakob Sigurðsson, Steinsholti í Hvalfjarðarsveit er meðal keppenda í meistardeild Vís í hestaþróttum sem RÚV sýnir frá í kvöld.
Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum er mótaröð sjö móta með hálfs mánaðar millibili frá 28. janúar fram í lok apríl. Keppendur eru úrval bestu hestaíþróttamanna Íslands. Keppnin fer í Ölfushöllinni fram annað hvert fimmtudagskvöld.</description>
Vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars 2010
	<description>Samkvæmt a-lið 1. mgr. 23. gr. laga um kosningar til Alþingis nr. 24/2000, sbr. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 4/2010, skal við þjóðaratkvæðagreiðsluna taka á kjörskrá alla þá sem skráðir voru með lögheimili í ákveðnu sveitarfélagi samkvæmt íbúaskrá Þjóðskrár þremur vikum fyrir kjördag, uppfylli þeir að öðru leyti skilyrði 1. mgr. 1. gr. kosningalaga.</description>
80. fundur sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar
	<description>Þriðjudaginn 9. febrúar n.k. verður haldinn 80. fundur sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar.  Fundurinn verður haldinn í stjórnsýsluhúsi og hefst hann kl. 16.00.  Hér er hægt að nálgast dagskrá fundarins.</description>
Dagur leikskólans í Hvalfjarðarsveit
	<description>Dagur leikskólans var haldinn hátíðlegur í leikskólanum Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit í dag.  Dagurinn byrjaði á því að börnin flögguðu íslenska fánanum með kennurum sínum, síðan var gengið yfir að stjórnsýsluhúsi þar sem börnin tóku til við að teikna listaverk á stéttina og á bílastæðið með krítum.  Kalt var í veðri og því sást í margar rauðar kinnar á ánægðum börnum sem nutu þess að láta ljós sitt skína.  Hvalfjarðarsveit óskar leikskólanum til hamingju með daginn.
Myndir í myndaalbúmi</description>
Dagur leikskólans
	<description>Dagur leikskólans – 6. febrúar er nú haldinn í annað sinn. Dagurinn er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, menntamálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla en þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Markmiðið með verkefninu er að beina sjónum að leikskólanum og því gróskumikla og mikilvæga starfi sem þar fer fram, hvetja til aukinnar umræðu um leikskólastarf og gera það sýnilegra.</description>